Öryggisfræðsla
Starfsfólki stendur til boða að fara á grunnnámskeið í skyndihjálp.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja þjálfa sig í grunnatriðum endurlífgunar og læra um notkun hjartastuðtækja sem nú eru í öllum byggingum skólans. Gott námskeið fyrir alla!
Smelltu hér til að sjá hvort námskeiðið er á dagskrá eða til að skrá þig á áhugalistann.
Kennd verða helstu handtök skyndihjálpar.
Grunn endurlifgun, umbúnaður áverka og spelkun beinbrota. Viðbrögð við ofkælingu ofl.
Einnig verður fjallað um hvernig megi bregðast við bráðum veikindum.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á hvernig megi bjarga sér í feltferðum þar sem getur verið langt að bíða aðstoðar og hvað á að gera meðan beðið er.
Smelltu hér til að sjá hvort námskeiðið er á dagskrá eða til að skrá þig á áhugalistann.
Grunnnámskeið fyrir þá sem hyggjast vinna á rannsóknastofum.
Gott yfirlitsnámskeið ætlað þeim sem eru að hefja störf í fyrsta sinn en hentar líka þeim sem langar að rifja upp nokkur grunnatriði.
Talað verður um samstarf, ábyrgð, vinnubrögð, öryggistæki, meðferð spilliefnaúrgangs og ýmislegt fleira.
Smelltu hér til að sjá hvort námskeiðið er á dagskrá eða til að skrá þig á áhugalistann.
Námskeiðið er ætlað fólki sem vinnur á rannsóknarstofum þar sem geislavirk efni eru meðhöndluð. Þetta er yfirlitsnámskeið þar sem fjallað er um mismunandi uppsprettur geislunar, grundvallarreglur geislavarna, ábyrgð, vinnubrögð og fleira.
Námskeiðið er einnig gagnlegt fyrir aðra, t.d. notendur röntgentækja til efnagreiningar (XRF) og geislavirkra efna (starfsemi í flokki C, geislalindir í hættuflokki 4-5).
Smelltu hér til að sjá hvort námskeiðið er á dagskrá eða til að skrá þig á áhugalistann.
Þátttakendur kynnast helstu hugtökum, aðferðum og verkfærum sem nýtast við að greina, meta og forgangsraða áhættu í vinnuumhverfi.
Fjallað verður um notkun gátlista, áhættufylkja, vinnuumhverfisvísa og annarra hagnýtra hjálpartækja sem styðja við markvissa og skjalfesta framkvæmd áhættumats.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja gera skipulegt og skriflegt áhættumat á sínu vinnusvæði og vilja fá skýra og praktíska innsýn í ferlið.
Smelltu hér til að sjá hvort námskeiðið er á dagskrá eða til að skrá þig á áhugalistann.